Orðaspjallsvæðing í leikskólum
Áhugasamir leiskólakennarar hafa setið námskeið.
Í haust stendur yfir innleiðing á Orðaspjallinu í öllum leikskólum Reykjanesbæjar, Garðs og Sandgerðis. Orðaspjallið er kennsluaðferð sem miðar að því að efla og auka orðaforða barna á leikskólaaldri. Ýmis orð eru valin úr barnabókum og unnið með þau á fjölbreytan hátt.
Áhugasamir kennarar úr leikskólunum hafa setið á námskeiði til að undirbúa sig hjá Árdísi H. Jónsdóttur og Ingu Sif Stefánsdóttur. Þær eru báðar leikskólakennarar í Tjarnarseli en þar hefur verið unnið með Orðaspjallið og kennsluaðferðin þróuð frá árinu 2009.
Að sögn Ingibjargar Bryndísar leikskólafulltrúa á fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar er góður orðaforði ein af undirstöðum þess að ná árangri í lestri. Það er því ánægjulegt að geta boðið upp á þetta námskeið, fyrst allra sveitarfélaga, sem góða viðbót í það fjölbreytta og öfluga læsis umhverfi sem er í leikskólunum.