Bygg
Bygg

Mannlíf

Opna sýningu í Listasafninu á laugardag
Fimmtudagur 18. janúar 2007 kl. 09:18

Opna sýningu í Listasafninu á laugardag

Hlaðgerður Íris Björnsdóttir og Aron Reyr Sverrisson opna listsýningu nk. laugardag í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og ber hún heitið Tvísýna.

Um er að ræða málverk í anda raunsæisstefnu af börnum, húsum og umhverfi.

Aðalsteinn Ingólfsson segir um þessa sýningu í inngangi að sýningarskrá “að verk þeirra Hlaðgerðar Írisar og Arons Reys þrífist á víxlverkan hins þekkta og óþekkta, um leið og þau kasti á milli sín - og til áhorfenda - spurningunni um náttúru hinnar hlutlægu listsýnar, hvort hún sé spegill eða gluggi.”

Sýningin opnar sem fyrr sagði á laugardag kl. 14 og verður opin alla daga frá kl. 13.00-17.30. Sýningin stendur til 4. mars.
Bílakjarninn
Bílakjarninn