Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Mannlíf

Opinn fyrirlestur í Svarta-pakkhúsinu
Fimmtudagur 15. september 2005 kl. 10:59

Opinn fyrirlestur í Svarta-pakkhúsinu

Þuríður Sigurðardóttir myndlistarmaður og annar tveggja sýningarstjóra sýningarinnar „Tívolí Hveragerði“ verður með opinn fyrirlestur í Svarta-Pakkhúsi miðvikudagskvöldið 21. sept. kl.20.00.

Sýningin sem er samsýning yfir tuttugu samtímalistamanna er yfirstandandi í Listasafni Árnesinga og hefur fengið afar góðar undirtektir gesta og lof gagnrýnenda.

Á fyrirlestrinum gefst einstakt tækifæri til að fá innsýn í hvernig sýning sem þessi verður til, hverjar áherslurnar eru sem lagðar eru til grundvallar og hvernig einvala lið listamanna frá aldrinum 20 – 86 ára vinnur úr þeim.

Þuríður hefur kennt á vinsælum námskeiðum við Myndlistaskóla Reykjaness undanfarna vetur. Allir eru velkomnir og enginn aðgangseyrir. Tilvalið tækifæri til þess að fræðast um nútímalist.

Skólastjórn Myndlistaskóla Reykjaness

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25