Opinn fundur Íslandspósts – póstþjónusta framtíðarinnar
Liður í fundaröð um stöðu og framtíð póstmála á Íslandi.
	Forsvarsmenn Íslandspósts halda opinn fund í Reykjanesbæ fimmtudaginn 2. október. Fundurinn er liður í fundaröð um stöðu og framtíð póstmála á Íslandi. Skoðun landsmanna á póstmálum er mjög mikilvæg fyrir fyrirtækið. Vonast er til að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um hvernig póstþjónusta framtíðarinnar eigi að líta út.
	 
	Fundurinn verður haldinn á Hótel Keflavík, Vatnsnesvegi 12-14, milli klukkan 17:00 og 18:30.
	
	 

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				