Þriðjudagur 21. apríl 2009 kl. 11:01
Opinn dagur hjá Keili
Laugardaginn 25. apríl verður opinn dagur hjá Keili. Kennarar, nemendur og starfsmenn kynna námsbrautir sem verða í boði næsta haust. Gestir geta einnig skoðað íbúðir og kynnt sér aðstöðuna á kampus. Mikið verður um að vera á svæðinu en Frístundahátíð Reykjanesbæjar verður sama dag.