Opið í Bláfjöllum um helgina?
Um helgina er stefnt að því að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum en á morgun kemur endanlega í ljós hvort takist að opna svæðið fyrir almenning. Skafrenningur og ofankoma hefur verið á svæðinu í dag.
Mikið hefur snjóað síðustu daga og því útlit fyrir að hægt verði að opna á morgun. Skíðaáhugamenn af Suðurnesjum ættu því að fylgjast vel með á www.skidasvaedi.is