Opið hús hjá Mýr design síðdegis
Helga Björg Steinþórsdóttir hönnuður hjá Mýr design er með opið hús í dag fimmtudaginn 1. mars frá 17.00-20.00 og býður fólk velkomið á nýja vinnustofu Mýr Design. Vinnustofa Mýr Design er staðsett á Frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú. Þar verður hægt að kynna sér hönnun Helgu í skarti og fatnaði. Jafnframt verður opnuð ný vefsíða http://www.myrdesign.net/
Íslensk, nútímaleg og þægileg hönnun eru aðalsmerki Mýr design. Helga Björg selur hönnun sína í Duty Free fashion, Kraum og í Atilier Einfach í Austurríki.
Helga Björg lærði fatahönnun og fatasaum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún var til fjölda ára sjálfstætt starfandi. Hún hefur sýnt hönnun sína á sýningum í Austurríki, Lúxemborg og í Þýskalandi. Helga hefur í nokkur ár verið með sýningu á Flug Hóteli á Ljósanótt í Reykjanesbæ og hún var með sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur í júní, 2010.