Opið hús hjá Lundi sumardaginn fyrsta
Forvarnaverkefnið Lundur heldur opinn kynningardag á morgun, sumardaginn fyrsta í Íþróttaakademíunni. Þar verður starfsemi Lundar kynnt, en Erlingur Jónsson og hans fólk hafa stimplað sig rækilega inn í forvarnarmálum hér á Suðurnesjum sem og víðar.
Dagskráin hefst kl. 13.00 með söng Kærleikskórsins, en innan hans eru margir skjólstæðingar Lundar og fleiri sem hafa snúið baki við vímuefnaneyslu.
Þá mun Sigríður Björnsdóttir segja reynslusögu sína af misnotkun áfengis og vímuefna ásamt fleiri góðum gestum.
Myndlistar- og ljósmyndasýning verður einnig á staðnum og léttar veitingar verða í boði auk þess sem boðið er upp á barnapössun.
Allir eru hvattir til að líta við á morgun, enda er um að ræða málefni sem snertir hvern sem er að einhverju leyti.
Mynd: Kærleikskórinn kemur fram á dagskrá Lundar.
Heimasíða Lundar er www.lundur.net