Opið hús 1. maí hjá stéttarfélögunum í Krossmóa
Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsmönnum og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund þann 1. maí í Krossmóa 4, 5. hæð. milli klukkan 14 og 16 og munu starfsmenn félaganna taka á móti fólki, bjóða upp á kaffi og veitingar meðan húsrúm leyfir.
Guðmundur Hermannsson spilar ljúfa tónlist og Valdimar mun koma við og taka nokkur lög fyrir gesti. Eins mun Leikfélag Keflavíkur koma og skemmta og formenn félaganna ávarpa gesti.
Stéttarfélögin í Krossmóa verða með einnig með opið hús á skrifstofum félaganna á 4. hæð og hvetja stéttarfélögin fólk til að koma við og kynna sér starfsemi þeirra.
Að venju bjóða stéttarfélögin upp á bíósýningu fyrir börnin kl. 13.00.