Óperuhátíð í Reykjanesbæ
Æfingar eru hafnar á óperunni Eugene Onegin eftir Pjotr Tschaikowsky sem flutt verður 24. og 26. ágúst í Hljómahöllini í Reykjanesbæ. Það eru margir af bestu söngvurum landsins sem taka þátt, auk þess sem nokkrir ungir mjög efnilegir söngvarar koma fram í sýninguni. Auk þess verður kór, hljómsveit og ballet í uppfærslunni. Það er óperufélagið Norðuróp sem stendur fyrir uppfærsluni en Suðurnesjamaðurinn Jóhann Smári Sævarsson leikstýrir og Antonia Hevesi sér um tónlistarstjórn.
Eftir mjög vel heppnaða uppfærslu á óperunni Toscu eftir Giacomo Puccini í Keflavíkurkirkju síðasta sumar, vaknaði sú hugmynd að stofna til árlegrar sumar óperuhátíðar í Reykjanesbæ. Þetta sumar verður boðið upp á enn stærri uppfærslu en á Tosca í fyrra, auk hátíðlegs Óperuballs í Hljómahöllinni.
Óperan sem flutt verður í sumar heitir Eugene Onegin eins og áður segir og er eftir rússneska tónskáldið Pjotr Tschaikovsky við sögu Púskin. Óperan fjallar um ástir, vináttu og afbrýði sem endar með einvígi þar sem Onegin drepur vin sinn Lensky. Sagan hefst í sveitasælu og endar á hátíðlegu balli Gremins fursta í St. Pétursborg. Tónlistin er stórfengleg, rómantísk og lagræn. Sungin verður íslensk þýðing Þorsteins Gylfasonar á verkinu sem flutt var í Íslensku óperunni 1993.
Einsöngvarar í sýningunni eru: Jóhann Smári Sævarsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Rósalind Gísladóttir, Viðar Gunnarsson, Dagný Jónsdóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Egill Árni Pálsson, Bragi Jónsson, Gunnar Kristmannsson og Sigurjón Ólafsson.