Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Óperuhátíð í Reykjanesbæ
Föstudagur 15. júní 2012 kl. 09:41

Óperuhátíð í Reykjanesbæ



Eftir mjög vel heppnaða uppfærslu á óperunni Toscu eftir Giacomo Puccini í Keflavíkurkirkju síðasta sumar, vaknaði sú hugmynd að stofna til árlegrar sumar óperuhátíðar í Reykjanesbæ. Þetta sumar verður því boðið upp á óperu uppfærslu í svipaðri stærðargráðu og Tosca en einnig verður slegið upp Óperuballi í Hljómahöllinni en fyrirhuguð hátíð fer fram frá 17. - 25. ágúst.

Óperan sem flutt verður í sumar heitir „Eugene Onegin“ og er eftir rússneska tónskáldið Pjotr Tschaikovsky við sögu Púskin. Óperan fjallar um ástir, vináttu, afbrýði sem endar með einvígi þar sem Onegin drepur vin sinn Lensky. Sagan hefst í sveitasælu og endar á hátíðlegu balli Gremins fursta í St. Pétursborg. Tónlistin er stórfengleg, rómantísk og lagræn. Sungin verður íslensk þýðing Þorsteins Gylfasonar á verkinu sem flutt var í Íslensku óperunni 1993.

Meðal söngvara í sýningunni eru: Jóhann Smári Sævarsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Rósalind Gísladóttir, Viðar Gunnarsson, Dagný Jónsdóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Bragi Jónsson, Gunnar Kristmannsson og fl.. Leikstjórn verður í höndum Jóhanns Smára og tónlistarstjórn í höndum Antoniu Hevesi.
Sýningar fara fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.

Mynd frá uppsetningu Tosca í fyrra sem að hluta til var utandyra.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024