Óperettutónleikar Óp-hópsins
Næstkomandi þriðjudag 19. janúar kl. 20 verða tónleikar Óp-hópsins í Íslensku óperunni. Á efnisskrá verður létt og skemmtileg Vínar- og óperettutónlist eftir J. Strauss, E. Kálmán, F. Lehár, R. Stolz o.fl. Sérstakur gestur á tónleikunum verður sópransöngkonan Auður Gunnarsdóttir sem hefur unnið til verðlauna fyrir fluttning á óperettutónlist.
Óp-hópurinn hefur haldið hádegistónleika í óperunni mánaðarlega í allan vetur og aðsóknin hefur verið gríðarlega góð. Í hópnum eru tveir Suðurnesjamenn þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran og Rúnar Þór Guðmundsson tenór en einnig koma fram Erla Björg Káradóttir sópran, Hörn Hrafnsdóttir mezzósópran, Jóhanna Héðinsdóttir mezzósópran, Jón Svavar Jósefsson barítón, Rósalind Gísladóttir mezzósópran og Antónía Hevesi píanóleikari. Stefán Baldursson óperustjóri leikstýrir tónleikunum, Páll Ragnarson sér um lýsingu og flytendur verða í sínu fínasta pússi. Óp-hópurinn var með hádegistónleika í Duushúsum í desember á vegum Tónlistarfélags Reykjanesbæjar fyrir nánast fullu húsi og fengu mjög jákvæð viðbrögð frá áheyrendum. Margir Suðurnesjabúar hafa beðið eftir kvöldtónleikum hjá hópnum og nú er loks komið að því. Miðasala er á vefsíðu Íslensku óperunnar, www.opera.is og einnig í síma 511 4200.
---
VFmynd/pket - Óp hópurinn á tónleikum í Duushúsum í desember síðastliðnum.