Bygg
Bygg

Mannlíf

  • Óperan Gianni Schicchi sýnd í Reykjanesbæ
  • Óperan Gianni Schicchi sýnd í Reykjanesbæ
Mánudagur 29. maí 2017 kl. 09:35

Óperan Gianni Schicchi sýnd í Reykjanesbæ

— Bjarni Thor Kristinsson leikstjóri sýningarinnar

Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir óperuna Gianni Schicchi eftir Giacomo Puccini í Bergi, Hljómahöllinni í Reykjanesbæ  fimmtudagskvöldið 1. Júní kl 19.30.
 
Gamanóperan Gianni Schicchi fjallar um erfðamál og græðgi Buoso fjölskyldunnar. Moldríkur ættfaðirinn hefur látist og fjölskyldan hefur heyrt orðróm að hann ætli sér að láta klaustri í nágrenninu eftir allar sínar eigur. Fjölskyldan leitar erfðarskránnar og kemst að því að orðrómurinn er réttur. Nú eru góð ráð dýr en Rinuccio, einn af skyldmennum hins látna, stingur upp á að leitað verði til Gianni Schicchi sem er þekktur fyrir að vera slóttugur. Eftir langt þref mætir Schicchi á staðinn og upphefst mikið sjónarspil.
 
Gianni Schicchi er eitt af lykilverkum Puccinis og verður óperan flutt á ítölsku en verður íslenskum texta varpað á skjá.  
 
Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Thor Kristinsson og hefur Antonía Hevesi verið æfingastjóri tónlistarinnar en hún leikur á sýningum á slaghörpuna. Elsa Waage hefur séð um ítölskuþjálfun nemendanna. 
Bílakjarninn
Bílakjarninn