OMAM tilnefnd í fjórum flokkum
Kiddi Hjálmur einnig tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna
Hljómsveitin Of Monsters And Men eru tilnefnd í fjórum flokkum íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða veitt í byrjun mars.
Söngkonan úr Garðinum, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, er tilnefnd sem söngkona ársins og platan þeirra Beneath the skin er tilnefnd sem poppplata ársins. Lag sveitarinnar Crystals er í flokki popplaga ársins og svo er sveitin einnig tilnefnd sem flytjandi ársins.
Í opnum flokki er Keflvíkingurinn Guðmundur K. Jónsson tilnefndur sem upptökustjóri ársins fyrir plötuna Karnivalía með Memfismafíunni og Braga Valdimar Skúlasyni.
Sjá allar tilnefningar hér.