Öll þjónusta í Vogum
Vogar er lítið, kyrrlátt þorp, mitt á milli Keflavíkur og Reykjavíkur, en það tekur um 20 mínútur að aka í hvora átt sem er. Bláa lónið er einnig aðeins spölkorn í burtu. GistimöguleikarÞeir sem vilja staldra við í Vogunum geta gist á tjaldstæðinu, sem staðsett er á bak við íþróttamiðtöðina, eða í Stóru-Vogaskóla, en þar er boðið upp á svefnpokapláss. Hægt er að panta gistingu í síma 424-6720.Hola í höggiFerðamenn geta fundið sér ýmislegt til afþreyingar í Vogum. Sundmiðstöðin er opin alla virka daga frá kl. 7:30-22:00 og um helgar frá kl.10:00-16:00, síminn er 424-6545. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar er staðsettur við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd, en þangað tekur aðeins örfáar mínútur að aka eða hjóla. Þetta er án efa einn af skemmtilegri 9 holu völlum landsins, en síminn þar er 424-6529. Í næsta nágrenni við golfvöllinn er Staðarborg sem er merkilegt mannvirki hlaðið um aldamótin 1900. Gönguleiðir eru margar og skemmtilegar í nágrenni Voga og er nærtækast að minna á ævintýrakort það sem ferðamálasamtök Suðurnesja gáfu út fyrir ekki mjög svo löngu síðan.Fyrir svanga ferðamennEftir langan göngutúr og sundsprett getur fólk sest inná veitingastaðinn Mamma Mía, Iðndal 2, og fengið sér eitthvað gott að borða. Þar er boðið uppá pizzur og grillmat. Staðurinn er opinn frá miðvikudegi til sunnudags, frá kl. 17:00 - 23:30. Þar er einnig hægt að kaupa ýmis konar skyndibita og drykki. Síminn er 424-6700. Þess má geta að í sama húsi er hárgreiðslustofan Kallistó, heilsugæsla og útibú frá Apóteki Keflavíkur.Hraðbúð Esso er opin alla daga nema sunnudaga frá kl. 07:30 - 23:30 og sunnudaga kl. 10:00 - 23:30. Þar fást allar helstu nauðsynjavörur ásamt bensíni, olíum og gasi. Síminn á Esso er 424-6631.