Bygg
Bygg

Mannlíf

Öll él birtir upp um síðir
Mánudagur 4. janúar 2010 kl. 15:51

Öll él birtir upp um síðir

„Þegar ég settist niður til að rifja upp eftirminnilega atburði ársins 2009 þá kom fljótt upp í huga minn orðið „gullfiskaminni“, sem gjarnan er notað um það hvað fólk er fljótt að gleyma. Smám saman fóru hlutirnir að skírast og ég held að árið 2009 verði fyrir mig eins og eflaust flesta Íslendinga aðallega minnisstætt fyrir umræðuna um afleiðingar efnahagshrunsins og deilur um ríkisábyrgð vegna Icesave,“ segir Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri í Sandgerði, í samtali við Víkurfréttir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


„Þetta hefur sannarlega verið ár átaka og erfiðleika fyrir fjölmarga á margvíslegan hátt. Mér finnst það hafa verið nokkuð táknræn athöfn fyrir ástandið, þegar húseigandinn á Álftanesi leigði sér gröfu og reif húsið „sitt“ í spað.

Ég held líka að úrslit alþingiskosninganna í apríl verði í minnum höfð, þar sem vinstri flokkarnir fengu í fyrsta sinn brautargengi hjá þjóðinni til að stjórna landinu. Það er von mín að „gullfiskaminnið“ hrjái ekki þjóðina þegar kemur að næstu kosningum.


Meðal jákvæðustu atburða ársins eru tvímælalaust að mínu mati góður árangur löggæslunnar í landinu gegn fíkniefnaframleiðendum, smyglurum og seljendum. Ég óska löggæslunni til hamingju og alls velfarnaðar í sínu góða og árangursríka starfi.

Hjá mér og minni fjölskyldu hafa skipst á sorg og gleði eins og gengur, en heilt á litið tel ég árið 2009 eitt besta ár fjölskyldunnar. Margir góðir hlutir hafa gerst, almennt góð heilsa hjá fólkinu, næg atvinna hjá öllum og góður árangur í námi. Fyrir þetta er rík ástæða til að vera þakklátur.

Mér er líka ofarlega í huga góður gangur við nýbyggingu grunnskólans í Sandgerði sem var tekinn í notkun í upphafi skólaársins í haust, en ég var verkefnisstjóri við þær framkvæmdir. Í þessu sambandi er mér efst í huga þakklæti til allra þeirra sem komu að þessu verkefni fyrir gott og ánægjulegt samstarf. Ekki hvað síst starfsfólki skólans sem mátti sætta sig við talsvert rask vegna framkvæmdanna.

Ég minnist með gleði og þakklæti kraftmikilla og góðra gönguferða sem ég átti með frábærum félögum allt árið 2009“.

- Strengir þú áramótaheit?
„Ég man ekki eftir því að hafa strengt áramótaheit, en á árum áður skrifaði ég oft lista yfir þau verkefni sem ég ætlaði að reyna að koma í verk og klára á nýju ári. Þetta fyrirkomulag reyndist bara nokkuð vel.

Ég vil að endingu hvetja fólk til að horfa til framtíðar með jákvæðu hugarfari og með bjartsýni að leiðarljósi. Öll él birtir upp um síðir,“ segir Jón Norðfjörð.