Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Óli G í Listasafni Reykjanesbæjar
Fimmtudagur 13. janúar 2011 kl. 10:47

Óli G í Listasafni Reykjanesbæjar

Laugardaginn 15. janúar kl. 15.00 verður opnuð sýning á verkum listmálarans Óla G. Jóhannssonar í Listasafni Reykjanesbæjar.
Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Augastaðir – Behind my eyes, gefur að líta rúmlega 20 ný akrílverk, lituð sterkum tilfinningum, bjartsýni og leikgleði.

Óli G hefur verið duglegur við sýningarhald síðustu ár og m.a. sýnt víða erlendis á vegum Opera, alþjóðlegs gallerís sem hann er samningsbundinn við.

Um verkin á þessari sýningu Óla segir m.a. í sýningarskrá: Af mikilli elju hefur Óli G. Jóhannsson haldið áfram að þróa málverk sín út frá norðlensku landslagi og æskuminningum, síað þessi viðfangsefni í gegnum COBRA list Svavars Guðnasonar og félaga hans í Danmörku, barnateikningar, einkanlegar fantasíur og list frumþjóða og aukið við þau af því sem hann hefur séð á ferðum sínum um sólrík lönd á borð við Ítalíu og Austurlönd fjær.

Sýningin er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og stendur til 27. febrúar. Þar er opið virka daga frá kl. 12.00 – 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 – 17.00 og aðgangur er ókeypis.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024