Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

 Ókeypis skemmtun fyrir börn á Suðurnesjum í dag kl. 13:30
Laugardagur 3. desember 2011 kl. 01:25

Ókeypis skemmtun fyrir börn á Suðurnesjum í dag kl. 13:30

Ókeypis skemmtun fyrir börn á Suðurnesjum verður laugardaginn 3. desember kl. 13:30 í Andrews-leikhúsinu á Ásbrú. Þar verður sýningin Andrés utan gátta en í fyrra sló þetta rækilega í gegn og smáfólkið hreifst verulega. Markmiðið er að safna í Velferðarsjóð Suðurnesja. Aðgangur er ókeypis en fyrirtæki á Suðurnesjum í raun bjóða börnum á sýninguna. Nöfn þeirra verða kynnt í næsta blaði. Húsið verður opnað kl. 12:30 og þá verður jólasveinn í anddyrinu. Foreldrar geta tekið mynd af börnum sínum hjá jólasveininum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Dagskráin hefst svo kl. 13:30 en hún er svohljóðandi:
Leikfélag Keflavíkur sýnir stutt atriði úr jólaleikriti sínu. Gospelkór Suðurnesja syngur nokkur lög. Pollapönk rokkar með börnunum. Brúðuleikhús.


Aðgangur er ókeypis og eru öll börn velkomin í boði fyrirtækjanna sem styðja samkomuna. Síðar um daginn kl. 17:00 verður svo kveikt á stóra jólatrénu frá Norðmönnum við Ráðhúsið í Reykjanesbæ.