Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Framúrskarandi fyrirtæki 2025

Mannlíf

Ókeypis jólatrésskemmtun í Garði
Sunnudagur 26. desember 2010 kl. 15:17

Ókeypis jólatrésskemmtun í Garði

Kvenfélagið Gefn heldur sína árlegu jólatrésskemmtun þriðjudaginn 28. desember nk. frá klukkan 16-18 í Miðgarði Gerðaskóla í Garði.


Að venju verður boðið upp á fjöruga tónlist, söng og gleði og veitingar að hætti kvenfélagskvenna. Einnig er von á jólasveinum með glaðning í poka fyrir yngstu börnin. Aðgangur er ókeypis eins og undanfarin ár.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk


Þessi skemmtun er framlag kvenfélagsins til íbúa í Garði með þökk fyrir veittan stuðning á liðnum árum. Garðbúar nær og fjær og gestir þeirra velkomnir.

Myndin: Jólasveinar verða á ferðinni með gott í poka.

Dubliner
Dubliner