Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Ókeypis bók fyrir börn, unglinga og fjölskyldur
Miðvikudagur 29. desember 2010 kl. 13:45

Ókeypis bók fyrir börn, unglinga og fjölskyldur

Birgitta Jónsdóttir Klasen hefur tekið saman áhugaverða bók sem hún kallar „DEMANTUR – bók fyrir börn, unglinga og fjölskyldur“. Bókin er nú aðgengileg lesendum Víkurfrétta hér á vf.is og má sækja bókina með því að smella hér og hlaða niður pdf-skjalinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á bókarkápu segir Birgitta:

„Börn og unglingar eiga ekki auðvelt í dag, en hvers vegna er það svo? Eflaust er það vegna þess að við ætlumst til of mikils af þeim. Ekki eru það börnin sem eru óþroskuð, heldur eru það við hin fullorðnu sem þurfum að uppfylla ákveðnar skyldur í uppeldi og þroska barna. Mikilvægt er að búa þau sem best undir framtíðina. Foreldrum ber að senda þeim skýr skilaboð þannig að „nei“ í dag þýði ekki „já“ á morgun. Einnig ber kennurum að hugsa betur um velferð barna, sérstaklega þeirra sem eru „eftir á“. þeir eiga að bjóða tækifæri sem efla sjálfstraust í gegnum námsárangur og brýna fyrir börnum að gefast ekki upp of snemma. Nemendur sem eiga í námserfiðleikum geta ekki fylgt hraða bekkjarins. það hefur óneitanlega áhrif á sjálfsálit þeirra með þeim afleiðingum að þau upplifa sig útundan, einangruð og óverðskulduð. þessi börn fá oft ekki tækifæri til að þroskast. það er á ábyrgð kennarans að sjá um að allir nemendur fái menntun við hæfi. Hlutverk hans er því einkar mikilvægt í hversdagslífi barna og fyrir framtíð þeirra“.