Of Monsters and Men heilla Kanann
Hljómsveitin Of Monsters and Men heldur af stað í mánaðar tónleikaferðalag í næsta mánuði um Bandaríkin og er þegar uppselt er á sjö tónleika af nítján sem verður að teljast afar gott fyrir nýja hljómsveit á erfiðu markaðssvæði.
Plata sveitarinnar verður gefin út þar í landi og í Kananda 3. apríl. Þessar vinsældir kunna að sæta nokkurri furðu þar sem platan er ekki enn komin út, en þetta er hins vegar skýrt dæmi um breytt landslag í tónlistarbransanum með tilkomu internetsins. Það hefur mikið gengið á hjá hljómsveitinni frá því hún var stofnuð fyrir um tveimur árum og það eru spennandi tímar framundan. Ríkisútvarpið heyrði í Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur söngkonu og gítarleikara en viðtalið má heyra hér.