Óðinn Freyr kominn heim
Óðinn Freyr, tveggja ára drengurinn sem gekkst undir kuðungsígræðslu í Svíþjóð fyrir nokkru er kominn aftur heim eftir vel heppnaða aðgerð. Honum líður vel og á að fá heyrnartæki í næsta mánuði og byrjar í talmálskennslu eftir það.
Vilja foreldrar Óðins þakka öllum þeim einstaklingum sem veittu þeim aðstoð við söfnunina fyrir aðgerðina sem fór fram þann 22. ágúst. Einnig þakka þau leikskólanum Gefnarborg í Garði fyrir allan þeirra stuðning og kvenfélaginu Gefn í Garði