Mannlíf

Nýtt lag og tónlistarmyndband
Þriðjudagur 26. maí 2015 kl. 14:47

Nýtt lag og tónlistarmyndband

Ruddinn er samstarfsverkefni Bertels Ólafssonar og Heiðu Eiríksdóttur. Gullna Ströndin er lag af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar More Music than Music sem er væntanleg í haust.

Gullna Ströndin er fyrsta lag Ruddans sem er á íslensku. Lagið er samstarfsverkefni Bertels og Heiðu en Heiða sá um textagerð og söng. Gullna ströndin og platan öll er hljóðblönduð og mixuð af Aroni Arnarssyni.

Myndbandið gerði Frosti Jón Runólfsson, segir í tilkynningu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024