Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Nýta hvern þráð
    Gleðin er alltaf í fyrirrúmi hjá sjálfboðaliðum Rauða kross búðarinnar. Á myndinni frá vinstri eru Sigrún Ásgeirsdóttir, frá Íslandi, Rogelia Helena, frá Portúgal, Halldóra Blöndal frá Íslandi, Mrije Nlka-Rasha, frá Albaníu, María Shishigina-Pálsson, frá
  • Nýta hvern þráð
    Halldóra Blöndal, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum.
Sunnudagur 15. nóvember 2015 kl. 07:00

Nýta hvern þráð

- Suðurnesjamenn gefa eitt tonn af fötum á viku í gáma Rauða krossins.

„Þetta er eiginlega falinn fjársjóður hérna hjá okkur,“ segir Halldóra Blöndal, verkefnastjóri um verslun Rauða krossins við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ. „Við erum búin að stækka búðina mikið að undanförnu enda nóg af fötum til að selja því Suðurnesjamenn eru mjög duglegir að koma með föt til okkar. Við erum alltaf að bæta við úrvalið hjá okkur.“

Fyrir utan Rauða krossinn við Smiðjuvelli eru fatagámar og eru þeir fljótir að fyllast. Í hverri viku kemur um eitt tonn af fötum í gámana. Hluti fatanna er seldur í búðinni, hluti fer í fataúthlutun hjá Rauða krossinum og annað er sent í burtu og ýmist selt í verslunum Rauða krossins í Reykjavík eða sent til útlanda. Fötin sem send eru til útlanda fara ýmist til bágstaddra eða eru seld til vefnaðarkaupmanna. Að sögn Halldóru er öll vefnaðarvara sem gefin er til Rauða krossins nýtt. „Það fer ekkert til spillis. Við getum jafnvel nýtt gamlar nærbuxur, sokka og rifin lök,“ segir hún og hlær.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

 

Fá oft ný tískuföt

Fólk gefur mikið af nýjum fötum til Rauða krossins og segir Halldóra hluta ástæðunnar vera þá að Suðurnesjamenn séu duglegir að fara til útlanda að versla. „Stundum fáum við ný föt sem eru enn með verðmiðanum á. Svo fáum við til okkar óskilamuni af flugvellinum og það eru uppáhalds dagarnir mínir. Það eru þá flíkur sem hafa verið þar í marga mánuði og enginn hefur vitjað. Það eru alltaf mjög fallegar flíkur, oft merkjavara og fallegar slæður. Reyndar gerðist það einu sinni að slæðu var vitjað í óskilamunum eftir að hún kom til okkar. Þetta hafði þá verið slæða sem upphaflegi eigandinn hafði keypt á 170.000 krónur. Hún var því miður ekki hjá okkur. Kannski vorum við búin að selja við hana á 500 krónur, það er erfitt að segja.“

Halldóra segir fólk stundum feimið við að versla í Rauða kross búð í fyrsta sinn. Það sé þó engin ástæða til þess enda séu allir velkomnir. „Innflytjendur hafa alltaf verið duglegir að koma til okkar en núna að undanförnu hafa fleiri Íslendingar bæst í hópinn. Margar konur segja okkur að þetta sér uppáhalds búðin þeirra.“ Verðinu er stillt í hóf og kosta flíkurnar á bilinu 100 til 2.000 krónur. Halldóra segir því alveg kjörið fyrir fólk með kaupæði að versla hjá Rauða kross búðinni. Oft gerist það líka að fólk kaupi sér föt í búðinni og skili svo þangað aftur þegar það er hætt að nota þau.

 

Sækir fólk í fataúthlutun

Fataúthlutun er til fólks á miðvikudögum og fær fólk þá að velja sér þau föt sem það vantar og er sú deild á afmörkuðum stað í húsi Rauða krossins, aðskilin frá búðinni. Þar fær fólk rúmföt, handklæði, hlý útiföt, lesgleraugu og annað sem því vanhagar um. „Fyrst voru það aðallega útlendingar sem komu í fataúthlutun til okkar en núna koma Íslendingar líka. Við viljum endilega hjálpa sem flestum. Starfið hérna snýst um það. Ég er búin að vinna hérna í eitt ár og held að ég sé orðin svolítið næm fyrir högum fólks. Stundum sé ég fólk í búðinni og býð því að koma í fataúthlutunina. Eftir því sem ég er lengur hérna á ég auðveldara með að finna fólkið sem þarf á hjálp að halda. Fólk kemur ekki alltaf sjálfviljugt og biður um hjálp, heldur þarf stundum að sækja það.“

Verslun Rauða krossins við Smiðjuvelli er opin á miðvikudögum og fimmtudögum frá klukkan 13 til 17.