Nýr píanókonsert eftir Eirík Árna
– frumfluttur á sunnudaginn, 23. mars
Frumfluttur verður nýr píanókonsert eftir Eirík Árna Sigtryggsson í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 23. mars kl. 17:00. Í Víkurfréttum í gær var sagt að konsertinn yrði 23. apríl, en það var misritað í tilkynningu til blaðsins. Flytjendur eru Tinna Þorsteinsdóttir og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna undir stjórn Oliver Kentis.
Píanókonsertinn „GRÚI“ var saminn árið 2011.
Nafnið „Grúi“ kom þannig til. Kunningi tónskáldsins kom óvænt í heimsókn og sá handritið af konsertinum í vinnslu. Sá horfði lengi á handritið og varð að orði: „Þetta er nú meiri nótnagrúinn“. Þarna var nafnið komið.
Konsertinn er saminn fyrir „litla“ sinfóníuhljómsveit þ.e. hljómsveit aðeins stærri en þá sem Mozart notaði.
Tinna Þorsteinsdóttir er nýr verðlaunahafi DV og hefur frumflutt marga nýja píanókonserta, ásamt nýrri píanótónlist yfirleitt.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna hefur einnig frumflutt mörg ný tónverk og náð mjög góðum árangri undir stjórn Olivers Kentis.
Eiríkur Árni hefur samið ótal tónverk, stór og smá, sem hafa verið flutt víða m.a. af Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Skemmst er að minnast söngtónleika í Stapa, þar sem voru frumflutt 20 sönglög eftir hann.