Föstudagur 5. febrúar 1999 kl. 21:34
NÝR MEIRIHLUTI FRAMSÓKNAR OG JAFNAÐARMANNA Í GRINDAVÍK

Ráðning bæjarverkstjóra varð meirihlutanum að falliÓsamkomulag um ráðningu í starf bæjarverkstjóra hjá Grindavíkurbæ varð til þess að úr meirihlutasamstarfi framsóknar og íhalds slitnaði um síðustu helgi. Flokkarnir hafa starfað saman fjögur síðustu kjörtímabil og tæpt ár betur. Nýr meirihluti er skipaður fulltrúum Framsóknarflokks og J-lista, jafnaðarmanna og verður Einar Njálsson áfram bæjarstjóri.„Ég gat ekki sætt mig við kröfu sjálfstæðismanna um að formaður Sjálfstæðisfélagsins yrði gerður að yfirverkstjóra bæjarins. Ég taldi rétt að auglýsa starfið og ráða svo hæfasta manninn“, sagði Hallgrímur Bogason, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur í samtali við Víkurfréttir. Ólafur Guðbjartsson, bæjarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna segir að samstarfið á því tæpa ári frá kosningum hafi ekki verið eins slétt og fellt og menn vilja vera láta. Nokkrum sinnum hafi komið upp mál sem menn voru ekki sammála um, s.s. ráðning bæjarstjóra, mál tengd læknaþjónustu í bænum og fleira. Ólafur sagði einnig að framsóknarmenn hafi verið ráðnir í allar þær stöður sem hafi verið auglýstar. „Við vorum ákveðnir að láta ekki yfir okkur ganga í þessu áhaldahúsamáli. Upphafið að því er þannig að bæjarstjóra var falið að koma með tillögu að lausn að vanda áhaldahússins. Tillaga hans var á þá leið að Ívar Þórhallsson sem verið hefur aðstoðar yfirverkstjóri yrði ráðinn yfirverkstjóri. Það voru allir sammála um þetta í meirihlutanum, nema Hallgrímur“, sagði Ólafur. Hann segir að það sé bara einskær óheppni að þetta mál skuli tengjast formanni Sjálfstæðisfélagsins. Það sé algjört aukaatriði. Hugmyndin hefði verið fyrst og fremst að reyna að taka á málinu á mannlegan hátt sem tengist starfslokum Ívars og fleri starfsmönnum í áhaldahúsi sem flestir eru að ljúka starfsaldri innan fárra ára. „Það mætti kannski rifja upp fyrir Hallgrími að formaður Framsóknarfélagsins var ráðinn í íþróttamiðstöð bæjarins án þess að staðan hafi verið auglýst“.Ólafur segir að þeir hafi rætt við jafnaðarmenn á laugardag og hann hefði átt von á hringingu frá þeim eftir fund þegar hann heyrði fréttir af því í útvarpi á mánudagsmorguninn að þeir hafi gert samkomulag við Framsókn. Hallgrímur Bogason sagðist bjartsýnn á samstarfið við jafnaðarmenn. Samkomulag hefði verið um að þeir gengju í nefndarstörf sem sjálfstæðismenn hefðu sinnt. Þannig yrði þetta ekki mikil umstang og gengi allt létt fyrir sig.VF-myndir: pket og hbb