Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Nýr áttæringur til Grindavíkur
Ólafur R. Sigurðsson og bátasmiðurinn Hafliði Aðalsteinsson.
Sunnudagur 11. júní 2023 kl. 06:00

Nýr áttæringur til Grindavíkur

Nýsmíðaður áttæringur var afhjúpaður í Grindavík á sjómannadaginn en meira en öld er síðan Íslendingar hættu almennt að róa til fiskjar á árabátum. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að smíði á slíkum bát en það eru Hollvinasamtök áttæringsins í Grindavík sem standa fyrir smíðinni.

Ólafur R. Sigurðsson er einn þeirra sem er í forsvari fyrir Hollvinasamtökin. „Þetta voru mikilvægustu atvinnutæki þjóðarinnar og íbúanna í Grindavík sem sóttu björg sína í sjóinn og hefur verið okkar lífsbjörg frá því land byggðist. Við áttum ekki líkan af alvöru áttæringi og þess vegna fórum við út í það að smíða skipið. Þetta er líkan af þeim skipum sem fórust hér á sundinu og sóttu björg í bú, þessi skip gerðu það að verkum að lífvænlegt væri í Grindavík.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þetta voru frekar stór skip, í Gullbringusýslu eru heimildir fyrir því að Grindavíkurskipin hafi verið lengst, allt að einum og hálfum metra lengri en almennt gerðist með áttæringa. Grindavíkurlagið var líka öðruvísi, þeir grindvísku voru grynnri en þó ekki eins og sandaskipin. Þeir rystu minna sem er þó undarlegt þar sem þau eru með mesta fermetrafjölda í seglabúnaði. Skipin í Grindavík voru byggð til að kljúfa ölduna, þegar stór alda kom undir að aftan við brimlendingu, klauf lagið á bátnum ölduna. Fyrir bragðið báru skipin ekki jafn mikið og önnur skip. Sandaskipin voru t.d. nánast flöt að neðan, kjöllaus. Grindvíski áttæringurinn þurfti að vera sterkbyggður vegna harðar lendingar, kjölurinn þurfti að vera með sterkara móti.

„Svona var lífið í Grindavík á þessum tíma, fólk gat ekki verið með mikinn búskap en þetta fór vel saman, þ.e. sjósókn, nokkrar rollur og tvær til þrjár beljur sem voru á þessum litlu blettum sem voru hér í þessum hverfum. Við flesta bæi í Grindavík, voru lengi litlar verbúðir fyrir þá menn sem sigldu út á þessum skipum.

Það var gaman að taka þátt í þessi verkefni og frábært að geta frumsýnt bátinn á þessari flottu sjómannahátíð sem við Grindvíkingar höldum. Áttæringurinn verður til sýnis við Kvikuna í sumar en hvar hann verður síðan geymdur og til sýnis er ekki gott að segja til um. Hver veit nema hann verði einfaldlega alltaf geymdur úti, ekki voru karlarnir á sínum tíma að koma bátunum í skjól frá veðrum og vindum,“ sagði Ólafur að lokum.

Ólafur R. Sigurðsson, Marta Karlsdóttir og Óskar Sævarsson frá Hollvinasamtökum áttæringsins.