HSS
HSS

Mannlíf

Nýjung í Suðurnesjamaraþoni
Mánudagur 26. júní 2006 kl. 13:11

Nýjung í Suðurnesjamaraþoni

Í ár verður boðið á hálfmaraþon í fyrsta sinn í Suðurnesjamaraþoninu sem fer fram þann 1. júlí nk. Boðið verður upp á eftirtaldar keppnisgreinar: Hálfmaraþon (ræsing kl 10:30), 10 km hlaup (ræsing kl 11:15), 25 km fjallahjólakeppni á malbiki (ræsing kl 11:10) og 3,5 km skemmtiskokk (ræsing kl 11:20). Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Líkamsræktarstöðin Lífstíll hefur umsjón með hlaupinu og frekari upplýsingar má nálgast hjá Vikari Sigurjónssyni í síma 899 0501.

Nánari upplýsingar um hlaupið verða birtar síðar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn