Nýfæddir kiðlingar í Landnámsgarðinum
Tveir krúttlegir kiðlingar fæddust í morgun í Landnámsgarðinum við Víkingaheima á Fitjum. Það var um klukkan níu í morgun sem kiðlingarnir komu í heiminn, einn strákur og ein stelpa. Móðir þeirra er hún Aþena sem verið hefur í garðinum frá því hann opnaði nú í vor.
Mjög gestkvæmt hefur verið í Landnámsgarðinum frá því hann opnaði og hafa um 3000 gestir þegar komið og heilsað upp á landnámsdýrin í garðinum.
Auk nýfæddu kiðlinganna má sjá fjölmargar geitur, lömb, kálfa, landnámshænur og kanínur. Landnámsdýragarðurinn er opinn frá kl. 11 til 17 alla daga.
Myndir: Aþena með börnin sín tvö sem fæddust í morgun. Þegar myndin var tekin voru kiðlingarnir að gera sig klára að stíga sín fyrstu skref. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárarson