Ný vefsíða Duus Safnahúsa
Á slóðinni www.duusmuseum.is hefur nýr vefur Duus Safnahúsa litið dagsins ljós. Þar er að finna upplýsingar um þær sýningar sem eru yfirstandandi hverju sinni og þá viðburði sem framundan eru auk margs konar hagnýtra upplýsinga svo sem um opnunartíma og aðgangseyri.
Duus Safnahús eru menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar og þau hýsa aðal sýningarsali safnanna í bænum, Byggðasafns Reykjanesbæjar og Listasafns Reykjanesbæjar. Þar er einnig að finna upplýsingamiðstöð ferðamanna, Geststofu Reykjaness jarðvangs, Bátaflota Gríms Karlssonar auk fleiri sýninga.
Þá eru Duus Safnahús einnig komin á Facebook og Instagram.