HSS
HSS

Mannlíf

 Ný sýning opnar í Suðsuðvestur
Föstudagur 23. september 2011 kl. 17:35

Ný sýning opnar í Suðsuðvestur

Á morgun laugardaginn 24.september opnar Bjarki Bragason sýninguna „Á milli B og C“  í  Suðsuðvestur í Keflavík.


Á milli B og C (Letters Between B and C) er verkefni þar sem samtal um tvö ólík söfn kemur fyrir. Söfnin innihalda plöntusýni frá sitthvorum tíma og stað, en titillinn vísar í bréfaskriftir sem voru grunnur þess að annað safnið varð að veruleika. Um sumarið 2009 í janúar 2010 tók Bjarki sýni af öllum plöntum og trjám í garði sem tilheyrði látnum ættingja, en framtíð garðsins var óákveðin. Söfnunin hafði í fyrstu engan áþreifanlegan tilgang, var heldur framkvæmd sem leið til þess að velta fyrir sér ferli söfnunar og minnis. Sumarplönturnar voru þurrkaðar og frágengnar eftir hefðbundnum leiðum, en vetrarsýnin geymd í kössum, þar sem þau voru óreiðukenndari, en verkfæri til þeirrar sýnatöku gleymdust. Hitt safnið myndaðist frá haustinu 2010 fram til vorsins 2011, í gegnum bréfasamskipti Bjarka við plöntufræðinginn Clyde, sem starfar við arkíf plöntusafns á Hawaii. Safnið samanstendur af brotnum leifum af plöntusýnum frá ýmsum tímabilum, en plönturnar eiga það sameiginlegt að vera útdauðar eða í útrýmingarhættu. Clyde hafði að ósk Bjarki farið í gegnum ómælt magn sýna, og hrist þau lauslega og safnað, með leyfi stjórnar safnsins, brotunum sem af féllu og sent honum í bréfapósti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Í verkum sínum fjallar Bjarki oft um samskipti, frásagnir og söfnun. Sýningin Lokaorð og stuttar þýðingar á byrjununum (2010) tók fyrir sögulegar frásagnir, skáldaðar og raunverulegar. Í verkinu var fjallað um meðvitund þriggja einstaklinga í fyrrverandi nýlenduríkjum, þar á meðal Íslandi. Verkið skoðaði frásagnir þeirra út frá þeim punkti að viss atvik í lífi þeirra væru táknmyndir söguþróunar og pólitískra atburða.


Bjarki útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006, stundaði skiptinám við Universität der Künste í Berlín, og lauk meistaranámi frá California Institute of the Arts (CalArts) í Los Angeles vorið 2010. Undanfarin ár hefur Bjarki haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis.

Sýningin stendur til 24.október

Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Keflavík.
Opið um helgar frá kl.2 – 5 og eftir samkomulagi.
www.sudsudvestur.is