Ný sýning í Suðsuðvestur

Þinn staður – minn staður / dit sted – mit sted II er unnið sérstaklega með rými Suðsuðvestur í huga, með ljósmyndum, þrívídd, málverki / þrykki og video.
Verkefnið er styrkt af Myndstefi, Muggi ( SÍM, Reykjavíkurborg og Icelandair) og Kunstraadets Fagudvalg for Billedkunst, Danmörku.
Anne Thorseth býr og vinnur í Danmörku og stundaði nám á Listaakademíunni í Kaupmannahöfn. Hún hefur kennt og haldið fyrirlestra ásamt því að vera deildarstjóri við Det Jyske kunstakademi um árabil. Anne hefur haldið fjölda sýninga í Danmörku og víðar síðan 1973.
Þóra Sigurðardóttir stundaði nám við Myndlista-og handíðaskóla Íslands, Myndlistaskólann í Reykjavík og Det Jyske Kunstakademi, Danmörku. Þóra hefur stundað kennslu, unnið teikningar fyrir bækur og var skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík 1998-2005. Hún hefur sýnt hérlendis og erlendis síðan 1992.
Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ. Opnunartími er: fimmtudaga og föstudaga frá 16.00. til 18.00. og um helgar frá 14.00. til 17.00. nánari upplýsingar fást á www.sudsudvestur.is