Ný sýning í Suð Suð Vestur
Laugardaginn 4.apríl opnar Ingólfur Arnarsson sýningu í Suðsuðvestur í Reykjanesbæ. Um er að ræða innsetningu þar sem unnið er með rýmið sjálft og því svolítið umbreytt. Auk þess verða til sýnis blýantsteikningar, þar sem unnið er með blæbrigði afmarkaðs hluta grátónaskalans. Fínlegt net krossskyggingar myndar þéttriðið net, sem tekur á sig ýmsar myndir. Ingólfur hefur haldið fjölmargar sýningar hérlendis og erlendis, síðast á samsýningunni Open í Nýlistasafninu. Af öðrum nýlegum sýningum mætti nefna samsýninguna Levity í Drawing Center, New York 2007 og einkasýningar í Kubbnum, sal Listaháskóla Íslands 2007, Sleeper Edinburgh 2006 og Safn 2005.
Ingólfur var prófessor við Listaháskóla Íslands 2000-2007.
Opnun sýningarinnar verður á veitingahúsinu Ránni gegnt sýningarsalnum 4. apríl kl.16. Þar mun ástralski tónlistarmaðurinn Ben Frost spila eigið efni. Ben Frost hefur verið búsettur hér á landi undanfarin ár og tengst sérstaklega Bedroom Community útgáfunni en diskur hans, Theory of Machines, hefur vakið mikla athygli, svo og útgáfur hans á ástralska útgáfunni Room40.
Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22, Reykjanesbæ. Þar er opið um helgar frá kl.14 – kl.17. og eftir samkomulagi í síma 662 8785.
Sýningunni lýkur 3. mai.
http://nylo.is/index.php?option=content&task=view&id=429&Itemid=237
http://www.ccnoa.org/Ingolfur-Arnarsson
http://www.chinati.org/visit/collection/ingolfurarnarsson.php
http://en.wikipedia.org/wiki/Ben_Frost_(musician)