Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Ný plata, lag og myndband frá OMAM
  • Ný plata, lag og myndband frá OMAM
Þriðjudagur 17. mars 2015 kl. 09:07

Ný plata, lag og myndband frá OMAM

Ný breiðskífa hljómsveitarfinnar OF MONSTERS AND MEN hefur fengið heitið Beneath The Skin og mun koma út 8. júní á Íslandi á vegum Record Records.  Þessi margrómaði kvintett frumflytur fyrstu smáskífuna „Crystals“ í dag á öldum ljósvakans sem og á Tónlist.is. 


Íslenska útgáfa breiðskífunnar mun innihalda lögin „Backyard“ og „Winter Sound“ sem verður ekki að finna á hefðbundinni útgáfu breiðskífunnar erlendis heldur eingöngu á viðhafnarútgáfum og þeirri íslensku.
Hljómsveitin hefur eytt síðastliðnu ári á Íslandi og í Los Angeles með upptökustjóranum Rich Costey sem vann með þeim að breiðskífunni en hann hefur unnið með hljómsveitum á borð við Muse, Death Cab for Cutie, Foster The People og Interpol.  Í síðustu viku sendi sveitin frá sér stutt myndbrot til að tilkynna heitið á fyrstu smáskífunni sem og útgáfudeginum.
Hljómsveitin leggur í tónleikaferðalag á næstunni og eru fyrstu tónleikarnir fyrirhugaðir í Massey Hall í Toronto í Kanada 4. maí næstkomandi.   

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Það má búast við miklu af sveitinni á næstunni og er óhætt að segja að margt hafi gerst síðan fyrsta breiðskífa þeirra kom út á Íslandi árið 2011 en hún hefur selst í tveim milljónum eintaka á heimsvísu.  
Frá árinu 2011 hefur sveitin spilað marga eftirminnilega tónleika á hátíðum á borð við Lollapalooza, Bonnaroo, Coachella, Iceland Airwaves, Newport Folk Festival, Osheaga, Glastonbury, Reading and Leeds, Pukkelpop og Splendour In The Grass auk fjölda annarra uppseldra tónleika um allan heim.  Þau hafa heillað sjónvarpsáhorfendur í þáttum á borð The Tonight Show með Jay Leno, Late Show með Jimmy Fallon, The Graham Norton Show og Saturday Night Live.  Einnig lánaði sveitin lagið sitt „Dirty Paws“ í kynningarmyndbrot á kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty og í kynningarmyndband fyrir iPhone 5, auk þess sem lagið „Silhouettes“ var sérsamið fyrir kvikmyndina The Hunger Games: Catching Fire.