HSS
HSS

Mannlíf

Mánudagur 19. febrúar 2001 kl. 04:25

Ný heimasíða Fjörheima

Félagsmiðstöðin Fjörheimar opnaði heimasíðu sína með viðhöfn sl. fimmtudag. Dagný Gísladóttir, ritstjóri heimasíðunnar, opnaði síðuna formlega.
„Tilgangur heimasíðunnar er að auðvelda unglingum og foreldrum í Reykjanesbæ að verða sér uppi um upplýsingar um starfið sem í Fjörheimum fer fram. Stundum höfum við tekið eftir því að unglingar úr Heiðarskóla, Holtaskóla og Myllubakkaskóla hafa ekki vitað nóg um starfið svo við vonum að þetta eigi eftir að verða unglingum og foreldrum til gagns og gamans“, segir Hafþór Birgisson, forstöðumaður Fjöheima.
Hönnun heimasíðunnar er gerð af Slick design sem Skúli B. Sigurðsson sér um. Sérstakar þakkir fá Borgar Erlendssyni í Gjorby og aðrir sem lögðu hönd á plóginn.
Bílakjarninn
Bílakjarninn