Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskólanna
Laugardagur 25. febrúar 2012 kl. 11:59

Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskólanna

„Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskóla“, er samstarfsverkefni Félags tónlistarskólakennara, Félags íslenskra hljómlistarmanna og Samtaka tónlistarskólastjóra. Nótan er hugsuð sem ný vídd í starfsemi tónlistarskóla og að hún sé í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið. Nótan hefur verið haldin árlega síðan 2010 og þetta er því í þriðja sinn sem hátíðin er haldin.


Tónlistarskólar landsins eru um níutíu talsins. Þar fer fram gríðarlega fjölbreytt og öflugt starf og með „Nótunni-uppskeruhátíð tónlistarskóla“, er kastljósinu beint að þessum samfélögum og tónlistarnemendum veittar viðurkenningar fyrir afrakstur vinnu þeirra. Markmiðið er að auka sýnileika og styrkja tengsl tónlistarskóla við umhverfi sitt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


„Nótan-uppskeruhátíð tónlistarskóla“ er þrískipt og skipulögð þannig að allir tónlistarskólar á landinu geti tekið þátt. Efnisskrá Nótunnar endurspeglar því á landsvísu, ólík viðfangsefni tónlistarnemenda á öllum aldri og á öllum stigum tónlistarnáms.


Fyrsti hlutinn felst í því að tónlistarskólar sem ætla að taka þátt, velja þau atriði sem þeir ætla að senda í annan hluta Nótunnar, sem eru tónleikar þess landsvæðis sem viðkomandi tónlistarskóli tilheyrir. Skólarnir framkvæma þennan fyrsta hluta með mismunandi hætti, allt eftir því hvað hentar hverjum skóla. Á svæðistónleikunum velur síðan valnefnd á vegum Nótunnar þau atriði sem fara áfram í þriðja og síðasta hlutann, sem eru lokatónleikar eða lokahátíð Nótunnar.


Tónlistarskóli Reykjanesbæjar mun taka þátt í Nótunni 2012 og þetta er í annað sinn sem skólinn tekur þátt. Okkar svæði er Suðurnes, Suðurland og svæðið umhverfis höfuðborgina, það sem gjarnan er kallað "Kraginn".


Fyrsti hlutinn fer fram, eins og áður segir, innan skólanna sjálfra og mun Tónlistarskóli Reykjanesbæjar að þessu sinni framkvæma þann hluta með hátíðartónleikum á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja, laugardaginn 25. febrúar, sem er hinn árlegi Dagur tónlistarskólanna. Tónleikarnir hefjast kl.14.00.


Á hátíðartónleikunum mun valnefnd úr röðum kennara velja þau atriði sem skólinn sendir til þátttöku í svæðistónleikunum, sem verða haldnir í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 11. mars. Þriðji og síðasti hluti „Nótunnar-uppskeruhátíðar tónlistarskólanna“, verður í salnum Eldborg í Hörpu, sunnudaginn 18. mars nk.


Þeir sem vilja vita meira um Nótuna, geta farið á vefsíðu verkefnisins, www.notan.is. Síðan er áhugasömum bent á að fylgjast með framvindu mála á vefsíðu Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, tonlistarskoli.reykjanesbaer.is