Bygg
Bygg

Mannlíf

Norskar poppstjörnur leigðu kvikmyndaver á Ásbrú
Föstudagur 13. janúar 2012 kl. 16:42

Norskar poppstjörnur leigðu kvikmyndaver á Ásbrú

Tökur á nýju tónlistarmyndbandi með norsku poppstjörnunni Atle Pettersen og hinum upprennandi rappara Rex, fara fram í Atlantic Studios á Ásbrú í þessum töluðu orðum. Atlantic Studios er kvikmyndaver í gömlum húsakynnum herflugvéla bandaríska hersins. Blaðamaður Víkurfrétta kíkti á tökustað og fylgdist með því hvernig tónlistarmyndband verður til.

Daniel Hamnes, umboðsmaður Rex er hálfíslenskur og hann hafði lengi langað að vinna á Íslandi sagði Rex í samtali við Víkurfréttir. Rex vildi einnig ólmur koma hingað og leist vel á aðstæðurnar og þær hugmyndir sem kynntar voru fyrir þeim þegar þeim stóð til boða að taka myndbandið upp hérlendis. Hann sagði að þeir Atle væru aðallega búinir að vera í tökum frá því að þeir komu til landsins í gær en til stæði að heimsækja Bláa Lónið í kvöld. Rex samdi lagið fyrir um ári síðan og fékk í kjölfarið Atle til liðs við sig og hafa þeir félagar mikla trú á laginu sem er kröftugt rapplag með rokkívafi. ??Haffi Haff er listrænn stjórnandi myndbandsins og hann var önnum kafinn þegar blaðamann bar að garði og augljóst að hann var allt í öllu á staðnum.

Atle Pettersen er sjóðheitur í Noregi um þessar mundir. Hann hefur átt mörg lög á vinsældalistum og varð hlutskarpastur í sjónvarpsþættinum Dancing with the Stars. Áður hafði hann lent í öðru sæti í X-Factor þar í landi. Lagið sem þeir Rex syngja í myndbandinu heitir Amazing og leikstjóri verður Gus Ólafsson sem hefur starfað mikið úti í Los Angeles.

Að sögn Elísabetar Thoroddsen hjá auglýsingarstofunni PIPAR/TBWA þá er umboðsskrifstofan sem Daniel vinnur hjá á meðal þeirra fimm stærstu í Noregi. „Það er mikill áhugi fyrir Íslandi úti. Þeim finnst þetta dálítið framandi að koma hingað og vinna. Það er fullt af listamönnum sem hafa áhuga á að koma hingað og þetta myndband gæti orðið farvegur fyrir einhver fleiri skemmtileg og stór verkefni. Framkvæmdarstjóri PIPAR/TBWA, Valgeir Magnússon, eða Valli sport eins hann er oft nefndur, segir að hann hafi fengið hugmyndina af því að nota kvikmyndaverið á Ásbrú því að hann vantaði stærðina sem það hefur upp á að bjóða. Þarna sé hægt að taka upp allar senur myndbandsins án vandkvæða og segir hann húsnæðið vera kjörið fyrir verkefni sem þessi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Haffi Haff sá um að olíubera rapparann Rex





Félagarnir í kvikmyndaverinu

Myndir/EJS: Á efstu myndinni er Atle hægra meginn og Rex á vinstri hönd.