Nóg um að vera í Gömlu Grágás
Dagana 22. febrúar til 4. mars hefur hópur ungmenna frá RV projects í Bretlandi verið hér í Reykjanesbæ. Hópar á vegum RV Projects fara víða um Evrópu og vinna sjálfboðavinnu þar sem þess er þörf og fá einingar í framhaldsskóla svæðisins sem þau koma frá.
Hingað komu 9 ungmenni ásamt 2 leiðtogum til að vinna sjálfboðavinnu í Grágás sem er félagsmiðstöð ungs fólks og er samstarfsverkefni Keflavíkurkirkju og Hjálpræðishersins fyrir 16-25 ára ungmenni. Þar er rekin kaffistofa, búð með notuðum fötum, saumastofa fyrir þá sem vilja endurhanna gamlan fatnað og margt fleira. Sjálfboðaliðarnir sáu um að parketleggja lítinn sal á efri hæð hússins þar sem meiningin er að hafa danshópa og drama, mála og flikka upp á staðinn.
Gamla Grágás — miðstöð ungs fólks er félagsmiðstöð fyrir ungt fólk og sem dæmi um viðburði á vegum miðstöðvarinnar má nefna Krakkasprell fyrir unga foreldra með lítil börn á þriðjudögum kl. 16-18.30, föstudagskvöld sem eru spila- og spjallkvöld og opið frá 20-01 og svo Grágásarhátíð sem verður helgina 15. og 16. mars n.k. og verður nánar auglýst síðar. Endilega líkið við síðuna á facebook www.facebook.com/GamlaGragasMidstodUngsFolks en þar er hægt að nálgast frekari dagskrá.