Njarðvíkurskóli á nafnið á Blossa
– lukkudýri Smáþjóðaleikanna
Í dag eru 100 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Að því tilefni var lukkudýri Smáþjóðaleikanna gefið nafnið Blossi. ÍSÍ efndi til nafnasamkeppni í janúar um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleika 2015. Þátttökurétt áttu allir 4.—7. bekkir í grunnskólum landsins. Hver bekkur mátti skila einu nafni. Keppninni bárust 140 nöfn.
Hugmyndaflug nemenda var mikið og rökstuðningurinn sem fylgdi nöfnunum mjög skemmtilegur. Fimm manna nefnd var skipuð til þess að vinna úr innsendum tillögum og velja nafn sem hentar lukkudýrinu.
Nafn lukkudýrsins var tilkynnt í dag í tengslum við úrslitaleiki í bikarkeppni KKÍ í Laugardalshöll. Tveir bekkir sendu inn tillögu með sigurnafninu, 6. bekkur í Vesturbæjarskóla og 5.H.G. Í Njarðvíkurskóla, og því varð að draga út vinningsskólann. Njarðvíkurskóli var dreginn út, með vinningsnafnið, sem er Blossi.
Haft verður samband við sigurvegara keppninnar á næstunni. Lukkudýrið Blossi mun heimsækja skólann við hentugt tækifæri og allir nemendur bekkjarins fá lítinn Blossa til eignar. Skólinn fær einnig í verðlaun tölvubúnað frá Advania að verðmæti 100.000 kr. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar nemendum og kennurum þeirra skóla sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna í nafnasamkeppni á lukkudýri Smáþjóðaleikanna.