Njarðvíkurskólanemi í starfskynningu á Víkurfréttum

Hvernig gekk þér í samræmdu prófunum?
Mér gekk frekar vel, þótt sum prófin voru erfiðari en önnur.
Af hverju valdirðu að fara á starfskynningu hjá Víkurfréttum?
Örugglega út af því ég hef áhuga á fjölmiðlun og mig langaði að sjá hvernig allt gengur fyrir sig.
Fylgistu með fjölmiðlum?
Já, ég fylgist oft með fréttum síðan les ég líka Fréttablaðið og að sjálfsögðu Víkurfréttir.
Ef þú mættir taka viðtal við hvern sem er, hver yrði það?
Ég veit ekki, það eru svo margir. En ef ég vel einn myndi ég örugglega velja einhvern af mínum uppáhalds leikmönnum í Liverpool.
Hvað ætlar þú að læra í framhaldsskóla?
Ég hef ekki ákveðið það ennþá.
Hvað gerir þú í frístundum?
Mér finnst gaman að ferðast, fara í bíó en samt er aðaláhugamálið fótbolti.
Myndin: Jón Aðalgeir á ritstjórn Víkurfrétta. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.