Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Nemendurnir upplifa þetta mjög jákvætt
Laugardagur 5. mars 2022 kl. 06:13

Nemendurnir upplifa þetta mjög jákvætt

Sjötugur Myllubakkaskóli með starfsemi víða um Reykjanesbæ

Hlynur Jónsson, aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla, segir stemmninguna í skólanum vera ágæta á 70 ára afmæli skólans. „Við vorum búin að skipuleggja að halda miklu stærri afmælishátíð, sem varð ekki eins og við hefðum viljað vegna aðstöðunnar sem við erum í. Stemmningin var fín á afmælisdaginn og við héldum danspartý á skólalóðinni 17. febrúar. Okkur fannst það takast vel og erum ánægð með það en þetta var ekki næstum því eins stórt í sniðum og við hefðum viljað,“ segir Hlynur í samtali við Víkurfréttir.

Svakalegt álag og ótrúlega mikil aðlögun

Þið í Myllubakkaskóla lendið í vandræðum þegar kemur upp mygla og setur allt skólastarfið úr skorðum. Hvernig hefur starfið gengið?

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Þetta hefur gengið ágætlega en er svakalegt álag og ótrúlega mikil aðlögun sem er búin að eiga sér stað. Starfsstöðvar skólans eru í dag á sex mismunandi stöðum og við höfum í raun og veru dreift okkur um allan bæinn og við höfum þurft að færa íþróttir líka, þannig að þetta hefur verið áskorun fyrir alla hlutaðeigandi.“

Svanhildur Skúldóttir umsjónarkennari og Guðlaug Bergmann með nemendum sínum í 3.-SS.

Hvernig gekk að dreifa skólastarfinu um bæinn?

„Það gekk erfiðlega að finna húsnæði í Reykjanesbæ, sérstaklega nálægt þeirra skólahverfi. Við vildum helst ekki vera að fara eitthvað langt í burtu, þannig að þau gætu ekki verið í sínu skólahverfi. Þetta hafðist allt að lokum en rýmin eru lítil á hverjum stað, þannig að þetta eru einn til þrír árgangar á hverjum stað fyrir sig.“

Þetta er ekki bara erfitt fyrir börnin, heldur einnig kennara og annað starfsfólk.

„Það góða er að nemendurnir upplifa þetta mjög jákvætt, kvarta ekki neitt og finnst þetta bara spennandi nýjar aðstæður. Þetta hefur reynt miklu meira á starfsfólkið okkar.“

Svo eruð þið að standa í þessum málum í miðjum heimsfaraldri.

„Svo við tölum nú ekki um það. Það vantar 20–30% starfsfólksins suma dagana og hefur verið þannig í nokkrar vikur. Það er erfitt að leysa það en við höfum þó náð því ágætlega.“

Hvernig er staðan núna á 70 ára afmæli skólans?. Er komin einhver framtíðarmynd hjá ykkur? Eins og staðan er í dag eruð þið flutt aftur inn í elsta hluta skólahúsnæðisins.

„Já, við erum flutt aftur hingað inn með fyrsta til fjórða bekk. Þetta er þriggja ára verkefni áætla ég en það er ekki komin nein tímaáætlun eins og staðan er í dag. Við fáum fleiri færanlegar kennslueiningar sem verða settar upp framan við skólann og þá flytjum við fleiri árganga til baka.“

Það er hver fermetri nýttur í þeim hluta af skólahúsnæðinu við Sólvallagötu sem hefur verið tekinn í notkun að nýju. Hér er Elínborg Sigurðardóttir, sem í dag er með lengstan starfsaldur kennara við skólann, að aðstoða nemendur.

Eitthvað rifið og annað endurnýjað

Ekki liggur fyrir hvað verður gert í framkvæmdum við Myllubakkaskóla. Það liggur fyrir að eitthvað þarf að rífa og endurnýja og þá þarf að bæta við húsakost. Þá segir Hlynur að endurskipuleggja þurfi húsnæði skólans miðað við nútíma kennsluhætti.

Reynt hefur bæði á nemendur og starfsfólk Myllubakkaskóla eftir að myglu varð vart í húsnæði skólans. Hlynur segir að meira hafi verið um að starfsfólk finni fyrir einkennum af myglunni og það er ástæða þess að starfsemin var flutt úr húsnæði skólans við Sólvallagötu. Samkvæmt rannsóknum eru fáir með ofnæmi fyrir myglunni en allt upp undir fjórðungur starfsfólks fann fyrir einkennum vegna hennar.

Hvernig horfið þið til framtíðar, það er bara að halda áfram og berjast?

„Það er ekkert annað í stöðunni. Við erum frekar jákvæð hérna finnst mér og við erum tilbúin í þessum áskorandi verkefnum og vinnum úr þeim og vonandi verður það áfram.“

Skólarnir í Reykjanesbæ eru þekktir fyrir mismunandi þætti í skólastarfi. Myllubakkaskóli er þekktur fyrir listsköpun, söng og leiklist. Hlynur segir að í dag sé einnig verið að vinna með þrívíddarprentun og þrívíddarhönnun. Þá er verið að vinna með forritun fyrir mismunandi vélmenni og verið sé að koma því meira inn í skólastarfið.

Nú hefur Myllubakkaskóli verið með nemendur af mörgum þjóðernum. Það hefur verið áskorun líka.

„Já, mjög mikil áskorun. Það er nær 42% nemenda af erlendu bergi brotin og um 30% sem fá kennslu með íslensku sem annað tungumál. Við í Myllubakkaskóla og Háaleitisskóli erum með sérstöðu í Reykjanesbæ í fjölda nemenda af erlendu bergi og það er frábært að vera með þessa nemendur og það skapar ákveðna flóru hjá okkur, það eru mismunandi menningarheimar og það er jákvætt.“

Gerir þetta starf kennarans erfiðara?

„Já, það gerir það. Þú þarft að gera ráð fyrir mismunandi börnum sem jafnvel eru ekki komin langt í íslenskunni. Við reynum að vera með námsver, fjölþjóðaver, hjá okkur þar sem þessi börn eru aðallega að fá sína kennslu, ásamt því að vera inni í bekk líka.“

Nemendur á elsta stigi eru með aðstöðu í íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ.

Árshátíð skólans verður ekki með sama sniði í ár

Í tilefni af 70 ára afmæli Myllubakkaskóla komu nemendur saman á skólalóðinni á afmælisdaginn þar sem afmælissöngurinn var sunginn og efnt var til danspartýs. Árshátíð skólans verður ekki með sama sniði í ár og undanfarið þar sem skólinn hefur t.a.m. ekki æfinga- og samkomuaðstöðu vegna þess ástands sem ríkir vegna myglu í skólanum.

Hlynur segir að þrátt fyrir allt, þá taki börnin í skólanum ástandinu vel og hafi verið fljót að aðlagast breyttum aðstæðum. „Þau hafa eiginlega ekki kvartað neitt og finnst þetta allt mjög spennandi.“

Skólastarfi Myllubakkaskóla hefur verið dreift víða um bæinn. Börn hafa verið í lausum kennslueiningum á skólalóðinni við Myllubakkaskóla. Einnig var kennsla í gamla Barnaskólanum við Skólaveg, í íþróttahúsinu við Sunnubraut, í Reykjaneshöllinni og Íþróttaakademíunni. Hlynur fagnar því að vera farinn úr gamla Barnaskólanum þar sem hljóðvistin þar er ekki góð þegar fjöldi nemenda er samankominn í skólastofunum. Þá er plássið þar heldur ekki eins gott og nemendur eiga að venjast.

Yngstu nemendurnir eru komnir aftur inn í elsta hluta Myllubakkaskóla þar sem unnar hafa verið endurbætur og sett upp aðstaða til bráðabirgða.

Ánægja að starfa með börnum

Hvað er það sem fær mann til að starfa sem kennari?

„Það er ánægjan að starfa með börnum. Það er það fyrsta sem ég myndi nefna. Í minni ætt eru margir kennarar og ég er fjórði ættliður sem kennir við Myllubakkaskóla. Ingveldur langamma mín kenndi við skólann og líka Eygló amma mín. Móðir mín náði að kenna við skólann í tvo vetur, þannig að ég er fjórði ættliður. Myllubakkaskóli er skemmtilegur vinnustaður og þrátt fyrir allar þessar breytingar þá er vinnuandinn góður, sem betur fer, og hann var sterkur fyrir.“

Hlynur segir að aðstæður skólans í dag séu krefjandi og að hann sé ótrúlega heppinn með starfsfólkið og að það hafi verið tilbúið í þessar breytingar sem verið hafa. „Þetta hefði verið óvinnandi vegur ef við hefðum ekki haft þennan meðbyr með okkur. Svo verð ég líka að þakka foreldrum barnanna. Þeir og foreldrafélagið hafa tekið vel í þetta og stutt okkur á þessari leið sem við höfum verið á.“

Hlynur Jónsson, aðstoðarskólastjóri Myllubakkaskóla.

Einni álmu Myllubakkaskóla hefur verið „pakkað inn“ til að varna að mygla smitist þaðan. Þessi álma verður rifin skv. heimildum Víkurfrétta.