Nemendur Myllubakkaskóla sækja Dani heim
	Þrjátíu og þrír nemendur 10. bekkjar Myllubakkaskóla og þrír kennarar héldu til Danmerkur sl. mánudag.
	
	Ferðinni er heitið til Aarup á Fjóni þar sem heimsóttur verður skóli sem Myllubakkaskóli er í samstarfi við.  Nemendur munu gista á heimilum danskra nemenda og fylgja þeim í skóla og aðra viðburði alla vikuna.
	
	Bæði verða hefðbundnir skóladagar og óhefðbundnir. Nemendur munu t.d. heimsækja H. C. Andersen Hus í Odense og einnig skoða listasafn þar.
	
	Ýmis verkefni hafa verið unnin í aðdraganda ferðarinnar og eru nemendur í 5 manna vinnuhópum sem 2 Íslendingar og 3 Danir skipa. Þau hafa m.a. unnið að kynningu á fermingarsiðum í báðum löndum og munu kynna sín verkefni þegar út er komið.
	
	Á heimleiðinni verður stoppað í Kaupmannahöfn og þar verða Tívolí, Strikið og margir aðrir markverðir staðir skoðaðir.
	
	Verkefnið og samskiptin við dönsku krakkana halda svo áfram í allan vetur og enda á að Danirnir koma hingað til okkar í maí nk.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				