Nemendur Heiðarskóla lærðu hugleiðslu
Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir, grunnskólakennari, rithöfundur og heilari, heimsótti í gær nemendur í 5. HT, 5. EN og 6. EA í Heiðarskóla og kynnti hugleiðslu fyrir þeim.
Fyrir jól gaf hún frá sér bókina Garður hugans og með henni leiddi hún nemendur inn í þeirra hugargarð.
Nemendur létu vel af þessari tilraun til hugleiðslu og töluðu mikið um hversu notalegt það hefði verið að slaka á á þennan hátt. Á myndinni má sjá Ingibjörgu ásamt nemendum úr 5. EN.