Náttúruvika á Reykjanesi
Dagana 25. júlí – 2. ágúst 2010 verða ýmsir dagskrárliðir tengdir náttúrunni í boði á Reykjanesskaga s.s. gönguferðir, fjöruferðir, fræðsla, sýningar o.m.fl. Nánar um dagskrárliði má sjá á vefsíðunni www.natturuvika.is . Náttúruvikan er samstarfsverkefni menningarfulltrúa Grindavíkur, Garðs, Sandgerðis, Voga, Reykjanesbæjar og sjf menningarmiðlunar. Náttúruvikan er hugsuð sem góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna og jafnframt til að minna á hvað náttúran hefur upp á margt að bjóða. Náttúruvikan er styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Verkefnastjóri er Sigrún Jónsd. Franklín, [email protected], gsm 6918828 www.sjfmenningarmidlun.is