Náttúrusögur Olgu Bergmann í SUÐSUÐVESTUR
Sunnudaginn 31. júlí er síðasti dagur sýningar Olgu Bergmann ”Náttúrusögur” í sýningarýminu SUÐSUÐVESTUR.
Olga hefur undanfarið unnið úr hugmyndum um fútúristískar þróunarkenningar sem byggja á möguleikum erfðavísindanna en einnig skoðað hvernig náttúrugripasöfn til dæmis stilla sýningargripum sínum fram í sviðsettu umhverfi sem hermir eftir náttúrunni.
Á sýningunni í Suðsuðvestur eru ný verk unnin á þessu ári- hvít dýr í náttúrulegu umhverfi, steingervingar og stutt náttúrulífsmynd.
Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ. Þar er opið fimmtudaga og föstudaga frá 16 – 18 og um helgar frá 14 – 17. Nánari upplýsingar fást á www.sudsudvestur.is