NASA heimsótti Heiðarskóla
Þriðjudaginn 17. apríl fengu nemendur 8. – 10. bekk í Heiðarskóla heimsókn frá NASA. Tveir vísindamenn sögðu nemendum frá rannsóknum NASA á jökulbreiðu Grænlands og ísbreiðunni í kringum Norðurpólinn. Þessar rannsóknir eru unnar í samstarfi við Veðurstofu Íslands.
Nemendur fengu mjög góðar lýsingar á því hvernig mælingarnar eru gerðar og hvers konar tækni er notuð. Flugvélin sem notuð er í þessu verkefni kallast ER-2 og er henni flogið í allt að 70 þúsund feta hæð, sem gerir það að verkum að flugmaður vélarinnar verður að klæðast geimbúningi.
Það sem vakti hvað mesta forvitni nemenda var einmitt geimbúningurinn, en tveir geimbúningatæknimenn sögðu nemendum allt um það hvernig þeir virka og hvers vegna þörf er á að klæðast búningnum.
Í lok kynningarinnar gafst nemendum kostur á að spyrja vísindamennina og komu fram margar skemmtilegar spurningar.
Miklar umræður urðu um það hvernig flugmennirnir gætu matast og gert nauðsynlegar þarfir, klæddir í geimbúning. Gaman er að segja frá því að öll kynningin fór fram á ensku og var athyglisvert að sjá um 150 nemendur hlusta á hana og að því virtist, skilja allt sem fram fór.
Geimbúningurinn kostar milli 30 og 40 milljónir króna.