Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Námskeið í tæknilegri DSLR ljósmyndun og myndbandsvinnslu hjá Keili
Föstudagur 7. október 2011 kl. 10:22

Námskeið í tæknilegri DSLR ljósmyndun og myndbandsvinnslu hjá Keili

Námskeið í tæknilegri DSLR ljósmyndun og myndbandsvinnslu, listrænni leiðsögn og vinnu með módelum hefst 17. október nkm, í samstarfi við Keili. Námskeiðið hentar bæði fyrir fagfólk og áhugaljósmyndara.

Námskeiðið er 30 klukkustundir og samanstendur af bæði kennslu og verkefnum. Kennt verður þrjá daga vikunnar (mánudaga, miðvikudaga og föstudaga) frá kl. 18:00 – 21:00 í aðalbyggingu Keilis. Námskeiðið hefst 17. október og stendur til 7. nóvember.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja bæta ljósmyndunarhæfileika sína og fá aukin skilning á hreyfimyndagerð.
Ítarlegt, krefjandi og áhugavert námskeið í skapandi umgjörð sama hvort þú ert atvinnuljósmyndari eða einfaldlega gaman af því að taka fallegar ljósmyndir og/eða myndbönd fyrir fjölskylduna þá getur þetta námskeið hjálpað þér.

Lærðu allt um hvað DSLR myndavélin þín er fær um að gera.

* Breikkaðu listræna sýn sem og vitund þína
* Fáðu ítarlegar útskýringar á tæknilegum hliðum ljósmyndunnar og myndbandagerðar
* Öðlastu dýpri skilning á tæknilegu hliðum Photoshop og Premiere Pro
* Kennsla í vinnu með módelum
* Prufaðu þig í fjölbreyttum verkefnum undir góðri leiðsögn
* Öðlastu meira öryggi á vinnuaðferðum og tækni sem bætir listrænt gildi verkefna þinna


Kvöldunum verður skipt upp í þrjá megin hluta; tæknilega hlutan, listræna hlutan og svo verkefna og/eða tilrauna hlutan.
Tæknilegi hluti námskeiðsins hjálpar þér svo dæmi sé tekið, að forðast tímafrek mistök sem og gefa þér meira öryggi á því verkefni sem liggur fyrir.
Listræni hlutin snýr að því til dæmis, að opna fyrir skapandi hugsun, skilja notkun litasálfræðar og vinnu með módelum.
Verkefna og/eða tilrauna hluti námskeiðsins leyfir þér að nýta það sem þú hefur öðlast, á verklegan hátt.
Einnig verða heimaverkefni sem skila þarf inn á einhverjum tímapunktum námskeiðsins.
Það skal tekið fram að hluti námskeiðins fer fram á ensku, en ávallt verður íslensku mælandi kennari á staðnum. Grunn skilningur á ensku er samt kostur.
Námskeiðið kostar 70.000.- en það er vert að nefna að flest verkalýðsfélög greiða niður allt að 60% af námsgjöldum. Talaðu við verkalýðsfélagið þitt og athugaðu hvað þeir greiða niður fyrir þig.

Dæmi:
(70.000 - 60% = 28.000.- fyrir 30klst námskeið!)

Til að skrá sig þarf að senda fullt nafn, kennitölu og heimilisfang á netfangið [email protected] greiða þarf fyrir námskeiðið fyrir 14.okt 2011.

Kennarar á námskeiðinu verða Ruben Mencos og Óttar Már Ingólfsson
Nánari upplýsingar í síma: 770 8559 (Óttar) eða á netfangið: [email protected]