Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Nær hundrað ungmenni af Suðurnesjum á Samfésball
Mánudagur 10. mars 2003 kl. 18:15

Nær hundrað ungmenni af Suðurnesjum á Samfésball

Samfésball 2003 var haldið föstudagskvöldið 7. mars í íþróttahúsinu að Kaplakrika í Hafnarfirði. Miðar á Samfésballið seldust upp á nokkrum klukkutímum , en félagsmiðstöðin Fjörheimar fengu 81 miða. Allar helstu hljómsveitir landsins léku fyrir dansi í Kaplakrikanum, Sálin hans jóns míns, Írafár, Sign, Bæjarins bestu, Í svörtum fötum, Igor, Búdrýgindi og Ber. Kynnir var Villi úr 200.000 naglbítum og sjónvarpsþættinum At sem sýndur er á RÚV.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024