Myndlistarveisla 20 listamanna í HF
Golfsalir HF húsanna hafa ávallt iðað af menningarlífi á Ljósanótt og verður engin undantekning á því nú. Alls munu 20 listamenn úr ýmsum áttum sýna verk sín í sölunum á þessari Ljósanótt. Þar verður fjölbreytnin ríkjandi í ljósmyndum, pennateikningum og málverkum.
Á meðal þeirra sem sýna verk sín eru ljósmyndararnir Olgeir Andrésson og Bjarni Bragason. Finn Bomann Larsen og Brynja Árna sýna pennateikningar. Helgi Vald., Þóra Jónsdóttir og Hjördís Árnadóttir sýna málverk og þá verður Vogaakademían með nemendasýningu.