Bygg
Bygg

Mannlíf

Myndlistarsýning átta listamanna
Mánudagur 28. apríl 2008 kl. 11:00

Myndlistarsýning átta listamanna

Á fimmtudaginn (1. maí) verður opnuð myndlistasýning 8 myndlistarmanna úr Reykjanesbæ í Gallerí 1og8 Hafnargötu 54, Keflavík. Á sýningunni eru 36 olíumálverk, allt frá raunsæisverkum til apstrakts. Verkin eru afrakstur námskeiðs sem listafólkið sótti í mars og apríl.

Er þetta fyrsta myndlistasýning sem opnar í Gallerí 1og8, en nú þegar er búið að skipuleggja nokkrar sýningar á þessu ári.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þeir sem sýna verk á sýningunni eru: Ásdís Friðriksdóttir, Agnes Agnarsdóttir, Bergþóra Káradóttir, Guðmundur Maríasson, Halla Harðardóttir, Inga Rósa Kristinsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir

Sýningin opnar kl. 16.00 og eru allir velkomnir. Boðið verður upp á léttar veitingar og uppákomur.

Mynd: Á sýningunni er m.a. þetta verk eftir Ingu Rósu Kristinsdóttur.